Fara í efni

Ársreikningur

Áritun óháðs endurskoðanda

Til stjórnar og félagsmanna í Einingu-Iðju

Álit
Við höfum endurskoðað meðfylgjandi ársreikning Einingar- Iðju fyrir árið 2025. Ársreikningurinn hefur að geyma skýrslu stjórnar, rekstrarreikning, efnahagsreikning, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um helstu reikningsskila-aðferðir og aðrar skýringar.
Það er álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á árinu 2025, efnahag þess 31. desember 2025 og breytingu á handbæru fé á árinu 2025, í samræmi við lög um ársreikninga. Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægilegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.

Grundvöllur fyrir áliti
Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt þeim stöðlum er nánar lýst í kaflanum um ábyrgð endurskoðenda hér að neðan. Við erum óháð Einingu-Iðju. Í samræmi við settar siðareglur fyrir endurskoðendur á Íslandi og höfum við uppfyllt ákvæði þeirra. Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægilegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.

Óhæði
Við erum óháð Einingu-Iðju. Í samræmi við settar siðareglur fyrir endurskoðendur á Íslandi og höfum við uppfyllt ákvæði þeirra.

Ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra á ársreikningnum
Stjórn og framkvæmdastjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu ársreikningsins í samræmi við lög um ársreikninga. Stjórn og framkvæmdastjóri eru einnig ábyrg fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er varðandi gerð og framsetningu ársreikningsins, þannig að hann sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Við gerð ársreikningsins eru stjórn og framkvæmdastjóri ábyrg fyrir því að meta rekstrarhæfi Einingar-Iðju. Ef við á skulu stjórn og framkvæmdastjóri setja fram viðeigandi skýringar um rekstrarhæfi og hvers vegna var ákveðið að beita forsendunni um rekstrarhæfi við gerð og framsetningu ársreikningsins, nema stjórn og framkvæmdastjóri hafi ákveðið að leysa félagið upp eða hætta starfsemi, eða hafa enga aðra raunhæfa möguleika en að gera það.
Stjórn skal hafa eftirlit með gerð og framsetningu ársreikningsins.

Ábyrgð endurskoðenda á endurskoðun ársreikningsins
Markmið okkar er að afla nægjanlegrar vissu um að ársreikningurinn sé án verulegra annmarka, hvort sem er af völdum sviksemi eða mistaka og gefa út áritun sem felur í sér álit okkar. Nægjanleg vissa er mikil vissa, en ekki trygging þess að endurskoðun framkvæmd í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla muni uppgötva allar verulegar skekkjur séu þær til staðar. Skekkjur geta orðið vegna mistaka eða sviksemi og eru álitnar verulegar ef þær gætu haft áhrif á fjárhagslega ákvarðanatöku notenda ársreikningsins, einar og sér eða samanlagðar.
Endurskoðun okkar í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla byggir á faglegri dómgreind og beitum við faglegri tortryggni í gegnum endurskoðunina. Við framkvæmum einnig eftirfarandi:

  • Greinum og metum hættuna á verulegri skekkju í ársreikningnum, hvort sem er vegna mistaka eða sviksemi, hönnum og framkvæmum endurskoðunaraðgerðir til að bregðast við þeim hættum og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi til að byggja álit okkar á. Hættan á að uppgötva ekki verulega skekkju vegna sviksemi er meiri en að uppgötva ekki skekkju vegna mistaka, þar sem sviksemi getur falið í sér samsæri, skjalafals, misvísandi framsetningu ársreiknings, að einhverju sé viljandi sleppt eða að farið sé framhjá innri eftirlitsaðgerðum.
  • Öflum skilnings á innra eftirliti sem snertir endurskoðunina, í þeim tilgangi að hanna viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki í þeim tilgangi að veita álit á virkni innra eftirlits félagsins.
  • Metum hvort reikningsskilaaðferðir sem notaðar eru, og tengdar skýringar, séu viðeigandi og hvort reikningslegt mat stjórnenda sé raunhæft.
  • Ályktum um notkun stjórnenda á forsendunni um rekstrarhæfi og metum á grundvelli endurskoðunarinnar hvort verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi eða hvort aðstæður séu til staðar sem gætu valdið verulegum efasemdum um rekstrarhæfi. Ef við teljum að verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi ber okkur að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum ársreikningsins í áritun okkar. Ef slíkar skýringar eru ófullnægjandi þurfum við að víkja frá fyrirvaralausri áritun. Niðurstaða okkar byggir á endurskoðunargögnum sem aflað er fram að dagsetningu áritunar okkar. Engu að síður geta atburðir eða aðstæður í framtíðinni valdið óvissu um rekstrarhæfi félagsins.
  • Metum í heild sinni hvort ársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum, metum framsetningu, uppbyggingu, innihald og þar með talið skýringar með tilliti til glöggrar myndar.

Okkur ber skylda til að upplýsa stjórn meðal annars um áætlað umfang og tímasetningu endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem komu upp í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka á innra eftirliti sem komu fram í endurskoðuninni, ef við á.

Áritun vegna annarra ákvæða, laga og reglna
Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 104 gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga staðfestum við samkvæmt okkar bestu vitund að í skýrslu stjórnar eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.

Akureyri, 22. apríl 2026
Enor ehf., Hafnarstræti 53, 600 Akureyri

Davíð Búi Halldórsson
löggiltur endurskoðandi

Áritun skoðunarmanna

Við undirritaðir félagskjörnir skoðunarmenn höfum yfirfarið reikninga Einingar-Iðju reikningsárið 2025.

Við höfum ekkert við þá að athuga og leggjum til að þeir verði samþykktir.

Akureyri 15. apríl 2026

Hrafnhildur Ása Einarsdóttir

Ævar Þór Bjarnason

Skýrsla stjórnar

Stéttarfélagið Eining-Iðja var stofnað þann 15 . maí 1999. Félagið var stofnað við sameiningu Verkalýðsfélags Einingar og Iðju félags verksmiðjufólks. Á árinu 2008 sameinaðist almenna deild Vöku á Siglufirði Einingu-Iðju. Fullgildir félagsmenn í árslok 2025 voru 7.594.

Starfsemin á árinu

Starfsemin á árinu var með svipuðu sniði og árið áður.

  Heildartekjur 922.764.454
  Heildargjöld (777.315.951)
  Tekjuafgangur 317.837.620

Laun formanns félagsins námu á árinu 2025 kr. 16.533.781 og laun stjórnar kr. 5.680.548.

Staðfesting ársreikningsins

Stjórn Einingar-Iðju staðfestir hér með ársreikning félagsins fyrir árið 2025 með áritun sinni.

Akureyri, 15. apríl 2026

Anna Júlíusdóttir, formaður
Tryggvi Jóhannsson, varaformaður
Gunnar Magnússon, ritari
Pálmi Þorgeir Jóhannsson, meðstjórnandi
Baldvin Hreinn Eiðsson, formaður Matvæla- og þjónustudeildar
Ingibjörg María Ingvadóttir, formaður Opinberu deildar
Ingvar Kristjánsson, formaður Iðnaðar- og tækjadeildar
Bethsaida Rún Arnarson, varaformaður Matvæla- og þjónustudeildar
Auður Íris Eiríksdóttir, varaformaður Opinberu deildar
Baldur Helgi Árnason, varaformaður Iðnaðar- og tækjadeildar
Ólöf Margrét Ingimundardóttir, svæðisfulltrúi Fjallabyggðar
Róbert Þorsteinsson, svæðisfulltrúi Grýtubakkahrepps
Sigríður Þórunn Jósepsdóttir, svæðisfulltrúi Hríseyjar og Dalvíkurbyggðar

 

Yfirlit um rekstrarafkomu 2025

2025

2024

Afkoma fyrir fjármagnstekjur og gjöld

 

Félagssjóður

123.720.727 90.790.378

Sjúkrasjóður

48.835.666 ( 1.672.476)

Orlofssjóður

(381.051) 3.461.457

Vinnudeilusjóður

(24.123.128) ( 24.405.601)

Fræðslusjóður

(11.290.032) ( 14.262.400)

Byggingarsjóður

(3.648.523) 3.644.046

 

133.113.659 57.555.404

Afkoma ársins

 

Félagssjóður

55.475.387 42.251.444

Sjúkrasjóður

57.371.253 7.850.390

Orlofssjóður

179.531.750 969.582

Vinnudeilusjóður

33.154.639 22.128.354

Fræðslusjóður

2.659.772 581.163

Byggingarsjóður

(10.355.181) (3.846.281)

 

317.837.620 69.934.652

 

Yfirlit um efnahag 31. desember 2025

 

31.12.2025

31.12.2024

Eignir

 

 

Félagssjóður

1.223.906.811 1.175.561.486

Sjúkrasjóður

271.533.328 214.162.075

Orlofssjóður

1.377.982.583 868.296.410

Vinnudeilusjóður

633.842.621 600.687.982

Fræðslusjóður

6.750.919 4.091.147

Byggingarsjóður

175.670.465 183.399.376

Kröfur/skuldir milli sjóða

(1.713.263.889) (1.492.850.217)

 

1.976.422.838 1.553.348.259

Eigið fé

   

Félagssjóður

289.423.156 253.877.491

Sjúkrasjóður

271.533.328 214.162.075

Orlofssjóður

556.072.159 260.819.306

Vinnudeilusjóður

633.842.621 600.687.982

Fræðslusjóður

6.750.919 4.091.147

Byggingarsjóður

(2.146.857) 8.208.324

 

1.755.475.326 1.341.846.325

Skuldir

   

Félagssjóður

934.483.655 921.683.995

Orlofssjóður

821.910.424 607.477.104

Byggingarsjóður

177.817.322 175.191.052

Kröfur/skuldir milli sjóða

(1.713.263.889) (1.492.850.217)

 

220.947.512 211.501.934

Eigið fé og skuldir samtals

1.976.422.838 1.553.348.259

Skýringar

1. Almennar upplýsingar

Eining-Iðja er stéttarfélag sem starfar á grundvelli laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur og laga félagsins frá árinu 2024. Starfstöðvar félagsins eru á Akureyri, Dalvík og Fjallabyggð þar sem það rekur þjónustuskrifstofur fyrir félagsmenn.

1.1 Yfirlit um helstu reikningsskilaaðferðir

Grundvöllur reikningsskila
Ársreikningurinn er gerður í samræmi við lög um ársreikninga. Gerð er grein fyrir helstu reikningsskilaaðferðum, sem í meginatriðum eru þær sömu og árið á undan, að öðru leyti en því sem fram kemur hér á eftir. Við gerð reikningsskilanna þurfa stjórnendur að meta ýmis atriði og gefa sér forsendur um mat á eignum, skuldum, tekjum og gjöldum. Þó svo möt þessi séu samkvæmt bestu vitund stjórnenda geta raunveruleg verðmæti þeirra liða sem þannig eru metnir reynst önnur en niðurstaða samkvæmt matinu.

Innlausn tekna
Iðgjöld eru færð til tekna miðað við innsendar skilagreinar.

Aðrar rekstrartekjur
Söluhagnaður af varanlegum rekstrarfjármunumer reiknaður sem mismunur á söluverði og bókfærðu verði á viðskiptadegi.

Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
Vaxtatekjur eru tekjufærðar miðað við upphaflega ávöxtunarkröfu skuldabréfaeignar og áfallnar vaxtatekjur vegna bankainnistæðna og viðskiptakrafna eru tekjufærðar nema vafi leiki á um innheimtu þeirra.

Varanlegir rekstrarfjármunir og afskriftir
Varanlegir rekstrarfjármunir eru færðir á kostnaðarverði að frádregnum afskriftum.Orlofshús í orlofsbyggðum eru færð til eignar á fasteignamati.

Afskriftir eru færðar á kerfisbundinn hátt á áætluðum endingartíma eigna að teknu tillits til áætlaðs hrakvirðis. Afskriftaraðferðir, endingartími og áætlað hrakvirði er metið að minnsta kosti árlega.

Innréttingar og búnaður ................................................................................................... 20%

Orlofshús og fasteign Skipagötu ...................................................................................... 2-4%

Kostnaður vegna viðhalds er gjaldfærður í rekstrarreikningi þegar hann verður til. Kostnaður við meiriháttar endurbætur á varanlegum rekstrarfjármunum er eignfærður þegar endurbæturnar hafa í för með sér að eignir verði hæfari til tekjuöflunar eða nýtingartími verður lengri. Endurbæturnar eru afskrifaðar á áætluðum endingartíma viðkomandi eigna. Endurbætur orlofshúsa á orlofssvæðum eru færðar á eigið fé og endurmatshækkun ársins á móti.

Aðrar eignir, langtímakröfur og áhættufjármunir
Eignarhlutir í orlofsbyggðum er bókfærður, sem hlutfall félagsins í eigin fé viðkomandi orlofsbyggðar. Hlutabréf eru metin á gangverði eða kostnaðarverði. Bundnar bankainnistæður eru flokkaðar með langtímakröfum þegar þær eru bundnar til lengri tíma en 12 mánaða.

Iðgjöld
Iðgjöld eru færð til tekna á grundvelli skilagreina sem félaginu berast frá launagreiðendum og útistandandi iðgjöld færð sem kröfur um áramót.

Handbært fé
Handbært fé og jafngildi þess eru færð í efnahagsreikning á kostnaðarverði. Handbært fé samkvæmt sjóðstreymi samanstendur af sjóði, óbundnum bankainnstæðum og fjárvörslureikningum.

 

2. Annar rekstrarkostnaður 2025

2024

Launakostnaður vegna stjórnar og nefnda 6.510.415 8.977.405
Funda- ferða-, móttöku- og auglýsingakostnaður 10.636.798 13.460.297
Endurskoðun, reikningsskil og sérfræðiaðstoð 4.279.576 3.269.545
Kerfisleiga og heimasíða 8.536.948 11.740.589
Þróunarkostnaður hugbúnaðar 1.753.014 5.324.301
Félagsblað 0 155.556
Framlag 1. maí 2.457.979 1.858.000
Skrifstofu og ráðningakostnaður 479.400 968.984
Áprentaðir munir til félagsmanna 1.109.176 758.348
Launa- og viðhorfskönnun 3.360.290 3.473.369
Styrkir til menningar- og líknarmál og gjafir 3.652.008 3.610.732
Viðhald og endurnýjun áhalda 4.098.890 1.987.077
Innheimtukostnaður 3.264.860 2.557.614
Lögfræðikostnaður 3.048.524 3.823.196
Námskeið stjórnar og starfsmanna 429.828 841.800
Niðurfærðar kröfur/iðgjöld, breyting 434.633 1.551.231
Ýmis annar kostnaður 3.363.277 2.222.848
  57.415.616 66.580.892

 

3. Kostnaðarþáttaka sjóða

2025 2024
Framlag félagssjóðs 125.262.530 125.199.587
Framlag sjúkrasjóðs 18.918.669 18.909.162
Framlag orlofssjóðs 28.600.425 28.586.054
Framlag vinnudeilusjóðs 21.178.029 21.167.387
Framlag fræðslusjóðs 15.332.384 15.324.680
Framlag byggingarsjóðs 5.737.636 5.734.753
  215.029.673 214.921.623

Kostnaði við rekstur skirfstofu, launum og öðrum kostnaði er skipt út frá mati á hvernig vinnutími starfsmanna skiptist á einstaka sjóði félagsins. Þetta mat er endurmetið raglulega af stjórnendum fálagsins.

4. Sjúkrasjóðsgreiðslur til félagsmanna

2025

2024

Sjúkraagpeningar

226.623.209 240.152.362

Útfararstyrkir

3.785.500 1.574.500

Sjúkraþjálfun/nudd

9.997.745 15.404.011

Líkamsrækt

17.145.643 20.774.481

Aðrir styrkir

18.640.520 21.917.672

 

276.192.617 299.823.026

 

5. Annar rekstrarkostnaður sjúkrasjóðs

2025

2024

Endurskoðun, reikningsskil og sérfræðiaðstoð

1.418.973 3.555.487

Innheimtukostnaður

2.918.754 2.286.483

Niðurfærð iðgjöld, breyting

393.239 1.551.231

 

4.730.966 7.393.201

 

6. Orlofshús, orlofsbyggðir og orlofsstyrkir

2025

2024

Rekstrarfélög orlofshúsa

56.803.966 65.779.635

Orlof að eigin vali, orlofsferðir og niðurgeiðsla frístundamiða

7.492.173 5.932.031

Rekstur og viðhald orflofsíbúða og húsa

49.483.817 47.387.246

Leiguhús og íbúðir

8.193.325 5.108.380

 

121.973.281 124.207.292

 

7. Annar rekstrarkostnaður orlofssjóðs

2025 2024

Endurskoðun, reikningsskil og sérfræðiaðstoð

454.811 722.931

Ýmiss kostnaður

18.768 86.815

Innheimtukostnaður

851.958 667.404

Niðurfærð iðgjöld, breyting

103.484 387.808

 

1.429.021 1.864.958

 

8. Eignarhlutir

   

Eignarhlutir sundurliðast þannig:

Bókfært verð

Nafnverð

Alþýðuhúsið, húsfélag

2.094.295 2.094.295

Smári Sparisjóður hf.

11.226.009 11.226.009

Félagakerfið Tótal ehf.

10.500.000 5.133.778

 

23.820.304 18.454.082

 

9. Útistandandi iðgjöld og viðskiptakröfur

Útistandandi kröfur greinast þannig:

31.12.2025

31.12.2024

Útistandandi kröfur

108.121.094 98.064.105

Niðurfærsla

(4.066.067) (4.777.523)

 

104.055.027 93.286.582

Skipting á sjóði:

 

 

Félagssjóður

75.243.378 65.320.992

Sjúkrasjóður

19.813.168 20.330.411

Orlofssjóður

8.998.481 7.635.179

 

104.055.027 93.286.582

Niðurfærsla iðgjalda er færð til þess að mæta almennri áhættu sem fylgir kröfueign félagsins. Niðurfærslan er byggð á mati stjórnenda og reynslu fyrri ára. Hér er ekki um endanlega afskrift að ræða heldur niðurfærslureikning, sem mæta á þeim kröfum sem kunna að tapast og er hann dreginn frá eignfærðum viðskiptakröfum í efnahagsreikningi.

 

10. Varanlegir rekstrarfjármunir

Varanlegir rekstrarfjármunir, endurmat þeirra og afskriftir greinast þannig:

Félagssjóður

Orlofssjóður

Byggingasjóður

Samtals

Innréttingar

Fasteignir

Innbú

Fasteignir

Innbú

 

Heildarverð 1/1

24.187.722 848.325.248 31.646.838 317.967.289 9.257.720 1.231.384.816

Endurmat á árinu

0 105.199.000 0 0 0 105.199.000

Keypt á árinu

0 517.787.540 5.015.892 0 0 522.803.432

Selt á árinu

0 (107.573.691) (119.090) 0 0 (107.692.781)

Heildarverð 31/12

24.187.722 1.363.738.097 36.543.640 317.967.289 9.257.720 1.751.694.468

Afskrifað 1/1

21.522.212 68.443.335 21.177.441 135.493.685 8.331.948 254.968.621

Afskrifað á árinu

326.237 18.046.641 3.922.394 7.728.911 0 30.024.183

Afskrifað alls 31/12

21.848.449 86.489.976 25.099.835 143.222.596 8.331.948 284.992.804

Bókfært verð samtals

2.339.273 1.277.248.121 11.443.805 174.744.693 925.772 1.466.701.664

Fasteignir félagsins í árslok 2025 voru eftirtaldar, í þúsundum króna:

Fasteignamat

Brunabótamat

Bókfært verð

Húseignin Skipagata 14

169.561 377.871 130.708

Álalind 2, 5 íbúðir

404.400 341.750 204.295

Eirhöfði, 6 íbúðir

507.050 398.190 507.432

Orlofshús Illugastöðum

331.899 419.800 331.899

Orlofshús Einarsstöðum

124.500 132.000 124.500

Orlofshús Svignaskarði

35.550 48.800 35.550

Orlofshús Flókalundi

14.800 19.150 14.800

Orlofshús Tjarnargerði

59.100 55.641 7.965

Orlofshúss Húsafelli

53.100 52.400 50.807

Eyrargata 24b

16.150 73.600 33.271

Hafnarbraut 5

7.130 24.900 10.766

1.723.240 1.944.102 1.451.993

 

11. Eigið fé

Yfirlit um breytingar á hreinni eign:

Sjóðir:

Félags

Sjúkra

Orlofs

Vinnudeilu

Fræðslu

Byggingar

Samtals

Eigið fé 1/1

253.877.491 214.162.075 260.819.306 600.687.982 4.091.147 8.208.324 1.341.846.325

Áfallið orlof

(18.318.539) 0 0 0 0 0 (18.318.539)

Endurmat varanlegra rekstrarfjármuna

0 0 105.199.000 0 0 0 105.199.000

Endurmat eignarhluta

(1.611.183) 0 0 0 0 0 (1.611.183)

Endurmat eignarhluta í orlofsbyggðum

0 0 10.522.103 0 0 0 10.522.103

Afkoma skv. rekstrarreikningi

55.475.387 57.371.253 179.531.750 33.154.639 2.659.772 (10.355.181) 317.837.620

Eigið fé 31/12

289.423.156 271.533.328 556.072.159 633.842.621 6.750.919 (2.146.857) 1.755.475.326

 

Ársreikningar 2025

Til baka á forsíðu