Fara í efni

Helstu tölur ársins

Hér má sjá nokkrar tölur úr starfseminu á árinu á þægilegan hátt

m.kr.
rekstrarniðurstaða
m.kr.
greiðslur til félagsmanna
félagsmenn
iðgjaldagreiðendur
hús og íbúðir

 

LYKILTÖLUR 2025 2024
Rekstrartekjur    
Félagsgjöld/iðgjöld 346.325.753 318.972.555
Sjúkrasjóðsgjöld 348.677.918 324.452.913
Orlofssjóðsgjöld 134.462.695 134.641.911
Húsaleiga 61.613.002 58.186.145
Aðrar tekjur 18.416.178 17.128.285
Samtals tekjur 909.495.546 853.381.809
Rekstrargjöld    
Laun og launategd gjöld 203.093.874 203.948.975
Greiðslur til félagsmanna 276.192.617 299.823.026
Rekstur og viðhald fasteigna 142.587.749 136.524.354
Annar rekstrarkostnaður 124.483.464 134.201.392
Afskriftir 30.024.183 21.328.658
Samtals gjöld 776.381.887 795.826.405
Tekjuafgangur af rekstri  133.113.659 57.555.404
Fjármagnstekjur og (fjármagnsgjöld)    
Vatatekjur 13.268.908 13.626.010
Vaxtagjöld og bankakostnaður (934.064) (1.246.762)
Fjármagnsliðir samtals 12.334.844 12.379.248
Tekjuafgagur af reglulegri starfsemi 145.334.844 69.934.652
Óreglulegar tekjur/(gjöld)    
Söluhagnaður fastafjármuna 172.389.117 0
Tekjuafgangur ársins 317.837.620 69.934.652

Ýmsar tölulegar upplýsingar

Helstu styrkir úr félagssjóði

  • Velferðarsjóðurinn í Eyjafirði kr. 1.250.000

Almenn starfsemi og þjónusta, fjöldi.

  • Starfsmenntastyrkir - 1.236
  • Bætur og styrkir úr sjúkrasjóði - 2.749 (2.081 félagar)
  • Orlofshús og íbúðir, leigur - 1.373
  • Orlof að eigin vali - 268

 

 

Sjúkrasjóður

2025

2024

Fjöldi

Upphæð

Fjöldi

Upphæð

Fjárveitingar úr sjúkrasjóði

félaga

styrkja

 

félaga

styrkja

 

Dagpeningar

252 262 226.623.209 262 681 240.152.362

Útfararstyrkir

8 8 3.785.500 5 5 1.574.500

Sjúkraþjálfun, sjúkranudd og kírópraktor

407 723 9.997.745 538 1.068 15.404.011

Heilsuefling

864 1.027 17.145.643 995 1.237 20.774.481

Aðrir styrkir

550 729 18.640.520 672 1.016 21.917.672

Bætur og styrkir til félagsmanna úr sjúkrasjóði

2.081 2.749 276.192.617 2.472 3.999 299.823.023

Greiðslur til félagsmanna

 
Ársskýrsla

 

 
Ársskýrsla

 

Orlofsmál

Félagsmenn þurfa að fara á Mínar síður Einingar-Iðju til að sækja um fyrir sumarvertíðina eða til að panta orlofseignir yfir veturinn. Þar inni er jafnframt gengið frá greiðslu. Í vefverslun þar inni er/verður einnig hægt að kaupa Veiðikortið og Útilegukortið.

Ferðir
Árið 2025 var boðið upp á tvær ferðir fyrir félagsmenn. 

Ferðanefnd félagsins ákvað á fundi árið 2024 að bjóða upp á utanlandsferð annað hvort ár og verður næsta utanlandsferð í boði á árinu 2026. Jafnframt var ákveðið að það ár sem ekki verður boðið upp á utanlandsferð að þá verði boðið upp á veglegri "Fjallaferð."

Leikhúsferð fyrir lífeyrisþega

Í mars bauð félagið félagsmönnum sem eru lífeyrisþegar á gamanleikinn Tom, Dick & Harry sem verið var að sýna í Freyvangsleikhúsinu. Tæplega 90 félagsmenn og makar þáðu boðið og skelltu sér á sýninguna sem var hin besta skemmtun. Að sýningu lokinn var boðið upp á glæsilegt kaffihlaðborð.

„Orlof að eigin vali“

268 styrkjum var úthlutað til félagsmanna á árinu 2025, hver að upphæð kr. 28.000. Sótt er um þennan styrk á sama hátt og tíma og þegar sótt er um orlofshús.

Orlofshús og orlofsíbúðir

Félagið á núna 23 orlofshús og átta orlofsíbúðir, auk þriggja sjúkraíbúða. Auk húsa og íbúða sem eru í eigu félagsins vorum við með orlofsbústaði víðsvegar um landið í skiptum fyrir orlofshús á Illugastöðum auk leigubústaða.

Tvö fyrirtækið hafa umsjón með íbúðum félagsins á höfuðborgarsvæðinu. Leigjandi þarf ekki að þrífa íbúðina eftir leigutíma, en auðvitað þarf að skila henni full frágenginni og snyrtilegri. Vert er að minnast á að um helmingur af leigutekjum félagsins af íbúðunum fer í greiðslur fyrir umsjón og þrif á þeim.

Félagsmenn þurfa sjálfir að þrífa orlofshús félagsins áður en þeim er skilað. Orlofshúsin eru sameign okkar allra og er nauðsynlegt að við sameinumst um að ganga um þau með því hugarfari. Mikilvægt er að hafa það að leiðarljósi að skilja við þau eins og þið viljið koma að þeim. Verði vanhöld á þrifum, að mati umsjónarmanns á viðkomandi svæði, má búast við að leigutaki þurfi að borga þrifagjald.

Fræðslumál

1.236 félagsmenn, 682 konur og 553 karlar, fengu einstaklingsstyrki úr sjóðunum á árinu 2025. Þetta er aukning um 34 félagsmenn frá árinu áður. Upphæðin sem greidd var hækkaði um tæpar 2 milljónir milli ára og var kr. 76.050.001.

Hvaða námskeið eða nám er um að ræða?

 

Aldursdreifing styrkþega

 

Hverjir sóttu námskeiðin?

Íslenska fyrir útlendinga

104

 

17-20 ára

229

 

Almenni markaðurinn

679

Tungumálanám

21

 

21-30 ára

529

 

Sveitarfélög

524

Framhaldsskóli

199

 

31-40 ára

268

 

Ríkið

33

Háskólanám

367

 

41-50 ára

125

 

 

 

Tómstundanám

38

 

51-60 ára

52

 

 

 

Starfstengt nám/námskeið

190

 

61-70 ára

33

 

 

 

Almenn ökuréttindi

126

 

 

 

 

 

 

Sjálfstyrkingarnámskeið

24

 

 

 

 

 

 

Náms- og kynnisferðir

1

 

 

 

 

 

 

Annað

87

 

 

 

 

 

 

Aðalbjörg G. Hauksdóttir veitir allar upplýsingar og er tengiliður við starfsmenntasjóðina þrjá sem félagið er aðili að, Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt. Hún hefur einnig umsjón með félagslegri fræðslu. Tryggvi Jóhannsson sér um starfs- og tómstundanámskeið félagsins. Ef félagsmenn fá hugmynd af einhverskonar námskeiði þá má endilega heyra í honum Tryggva.

Skil á gögnum - Rafrænar umsóknir á Mínum síðum
Umsóknir og gögn þurfa að hafa borist til félagsins í síðasta lagi 24. hvers mánaðar til að viðkomandi félagsmaður fái borgað út um næstu mánaðamót. Sérstakur umsóknarfrestur er í febrúar og desember og er það auglýst sérstaklega.

Einfalt er að sækja um og skila gögnum í gegnum Mínar síður félagsins. Félagsmenn geta líka séð hve mikinn rétt þeir eiga til helstu styrkja, hversu mikið þeir eru búnir að fá frá félaginu og einnig hve mikinn rétt þeir eiga eftir.

Vert er að minna á samstarfssamning sem félagið er með við SÍMEY með það að markmiði að skapa enn fleiri möguleika fyrir félagsmenn til að sækja sér fræðslu og auka við starfstengda hæfni sína. SÍMEY sér einnig um dyravarðanámskeið sem félagið hafði séð um í áratugi.

SÍMEY býður upp á fjöldamörg námskeið sem eru bæði starfstengd og tengd áhugamálum hvers og eins. Áhugasamir geta kíkt á www.simey.is til að sjá framboð námskeiða.

Endurgreiðsluhlutfall fræðslustyrkja