Fara í efni

Ávarp formanns á aðalfundi Einingar-Iðju 2026

Ágætu félagar

Það eru alltaf ákveðin tímamót þegar haldinn er aðalfundur í félaginu okkar þar sem farið er yfir atburði síðasta árs. Eins og áður er óhætt að segja að mikið hefur verið að gera hjá okkur.

Á aðalfundarvefnum, sem finna má á heimasíðu félagsins, er ársreikningurinn í heild sinni sem og allskyns upplýsingar um starfsemi félagsins á síðasta starfsári.

Mjög góð reynsla er komin á nýja félagakerfið okkar sem búið er að vera í notkun í eitt og hálft ár. Mínar síður félagsins, mitt.ein.is, voru teknar í notkun á saman síma en þær byggjast upp á persónublaði hvers félagsmanns í félagakerfinu.

Á mínum síðum má sjá yfirlit yfir viðkomandi félagsmann og þar sækja félagsmenn um eða panta orlofshús og íbúðir og ganga frá greiðslu. Þarna inni er einnig sótt um og skilað inn gögnum fyrir alla styrki í sjúkrasjóði og fræðslusjóðum félagsins, sem og sjúkradagpeninga.

Félagsmenn hafa verið mjög duglegir að nýta sér þessa auknu þjónustu. Ég hvet alla sem eiga eftir að fara þarna inn til að gera það, skoða sitt persónublað og uppfæra upplýsingar ef þarf, eins og síma, netfang og bankaupplýsingar.

Ég hvet líka alla til að skrá starfsstöð á Mínum síðum, sérstaklega ef viðkomandi félagsmaður starfar hjá ríkinu, sveitarfélagi eða hjá fyrirtæki með margar starfsstöðvar. Þegar félagið fær skilagrein frá stóru sveitarfélagi eða stórum vinnustað með margar starfsstöðvar þá eru tugir eða jafnvel hundrað nafna á skilagreininni en engar frekari upplýsingar. Því er það við t.d. afgreiðslu kjarasamninga, kosninga um verkföll og aðrar afgreiðslur félagsins, að leggja þarf í mikla vinnu við kjörskrá sem eykur hættuna á að einhverjir lendi utan hennar. Hvað varðar trúnaðarmannakosningar er ljóst að félagsmenn Einingar-Iðju um allt félagssvæðið eiga rétt á fleiri trúnaðarmönnum en þeim sem eru í dag. Ein leið til að tryggja að sem flestar starfsstöðvar geti kosið sér trúnaðarmann er að skrá sig á viðkomandi starfsstöð. Á heimasíðunni okkar má finna góðar leiðbeiningar fyrir helstu aðgerðir á Mínum síðum félagsins.

Ég minntist áðan á mikilvægi þess að skrá sig á starfsstöð ef það á við, m.a. vegna kosningu trúnaðarmanna. Við þreytumst ekki á að segja að öflugt trúnaðarmannakerfi er gullkista hvers félags. Trúnaðarmennirnir eru augu og eyru félagsins á hverjum vinnustað sem geta fylgst með að allt sé í lagi hvað varðar réttindi og skyldur vinnufélaganna.

Síðasta haust hvöttum við trúnaðarmenn til að bjóða okkur á vinnustaðafundi og er ánægjulegt að segja frá því að þeir hafa verið duglegir að fá okkur á fundi. En alltaf má gera betur og því hvet ég trúnaðarmenn aftur til að vera duglega að halda slíka fundi og fá starfsmenn félagsins á þá.

Á starfsárinu var ákveðið að selja fjórar íbúðir á Höfuðborgarsvæðinu og kaupa sex nýjar og voru þær teknar í notkun í janúar. Fimm íbúðanna eru notaðar sem orlofsíbúðir en ein þeirra er notuð sem sjúkraíbúð.

Íbúðirnar eru í Eirhöfða 7, en húsin þar eru meðal þeirra fyrstu sem rísa samkvæmt nýju deiliskipulagi Ártúnshöfða, sem breytist nú úr iðnaðarhverfi í nútímalegt íbúðahverfi. Um er að ræða eina fjögurra herbergja, þrjár þriggja herbergja og tvær tveggja herbergja íbúðir. Fimm íbúðanna eru á fjórðu hæð og ein á þriðju hæð, allar í húshluta C.

Við erum nú með átta orlofsíbúðir í boði fyrir félagsmenn á Höfuðborgarsvæðinu, þrjár í Álalind í Kópavogi og fimm í Eirhöfða í Reykjavík. Einnig eru þrjár sjúkraíbúðir í boði fyrir sunnan, tvær í Álalind og ein í Eirhöfða.

Stjórn félagsins ákvað að vera með sveigjanlegri leigutíma í íbúðum félagsins á Höfuðborgarsvæðinu. Frá 5. janúar sl. hefur verið í boði dag- og helgarleigur, eins og verið hefur í orlofshúsum félagsins. Á sumrin, um jól, áramót og páska verður eftir sem áður einungis vikuleigur í boði í öllum orlofskostum félags

Þetta er ekki eina nýjungin hjá okkur því frá því í febrúar hafa verið í boði rúmföt í íbúðum félagsins á höfuðborgarsvæðinu sem þýðir að EKKI þarf lengur að taka með sér sængurlín og lök þegar farið er í íbúðir félagsins á Höfuðborgarsvæðinu. Nú nýverið er einnig farið að bjóða upp á handklæði.

Við brottför þarf auðvitað að taka af rúmum og skilja eftir í þvottakörfu inni í þvottahúsi eða á baðherbergi. Ef það gleymist mega félagsmenn búast við aukagjaldi.

Frá því í janúar hafa félagsmenn haft aðgang að íbúð á okkar vegum á Spáni. Félagið tók íbúðina á leigu út nóvember og svo munum við taka stöðuna með framhald leigu að þeim tíma loknum. Það er opið fyrir bókanir í hana sex mánuði fram í tímann og því gildir fyrstur pantar, fyrstur fær. Í boði er að leigja eina eða tvær samfelldar vikur. Allar upplýsingar um íbúðina finnið þið á heimasíðu félagsins og Mínum síðum.

Á skrifstofum félagsins hafa ekki verið neinar breytingar hvað mannskap varðar frá síðast aðalfundi.

Ákveðið var að ráða inn sumarafleysinga starfsmann í heila stöðu á skrifstofuna á Akureyri í sumar og var Valgerður Ómarsdóttur ráðin til starfa á tímabilinu 1. maí til loka september. Valgerður starfaði líka hjá okkur í afleysingum á síðasta ári.

Í síðustu kjarasamningum á almenna markaðinum vorið 2024 náðist sátt um að bæta kjör starfsfólks í ræstingum umtalsvert og umfram aðra hópa. Frá þeim tíma hafa verið miklar deilur um vinnutíma og launafyrirkomulag Félagið lét framkvæma fyrir sig uppmælingar á útboðsgögnum frá Akureyrarbæ vegna grunnskóla bæjarins. Í þeim uppmælingum sem félagið lét framkvæma kom í ljós að þær eru með 40% meiri tíma heldur en verið er að greiða fyrir. Haldnir hafa verið fundir með ræstingafyrirtækjum til að leita skýringar á þessum mun en verið lítið um svör. Eins hefur verið fundað með Vinnueftirliti og öðrum opinberum stofnunum til að vinna að útbótum í þessari starfsgrein.

Það er vinna í gagni innan ASÍ og SGS félaga vegna þessara mála og sér Tryggvi varaformaður um þá vinnu fyrir okkar hönd.

Í kjarasamningum sem gerðir voru 2024 var samið um hóflegar launahækkanir en þrátt fyrir það bendir margt til þess að forsendur kjarasamninga gætu brostið í haust. Það eru mjög mikil vonbrigði að láglaunafólk séu þau einu sem þurfa að bera ábyrgð á verðbólgu og vöxtum á meðan ríki, sveitarfélög og fyrirtæki hafi hlaupist undan ábyrgð á gerðum kjarasamningum.

Staðan í þjóðfélaginu þrengir verulega að og háir vextir íþyngja þeim sem eru að greiða af lánum og gerir öðrum ókleift að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Afleiðingarnar verða meðal annars þær að lyfja- og lækniskostnaður mætir afgangi.

Niðurstöður Gallupkönnunar félagsins sem framkvæmd var undir lok síðasta árs leiða í ljós að yngra fólkið sérstaklega eigi sífellt erfiðara með að búa sér mannsæmandi líf. Ungt fólk sé nú lengur í foreldrahúsum því fasteignakaup eru nánast óyfirstíganleg hindrun fyrir ungt fólk og leigumarkaðurinn er líka mjög erfiður og ótryggur.

Vaxandi hlutfall félagsmanna hefur þurft að neita sér um læknis- og tannlæknisþjónustu vegna kostnaðar.

Stór hluti þeirra sem eru með börn á leikskóla er ósáttur við breytingar á opnunartíma og/eða gjaldskrá þeirra og hafa neyðst til að breyta vinnutíma sínum.

Þá hefur hlutfall þeirra sem segjast eiga erfitt með að greiða af lánum sínum ekki verið hærra síðan 2019.

Þetta sýnir að okkar baráttu lýkur aldrei.

Öllum þeim sem létu af störfum frá síðast aðalfundi þakka ég fyrir þeirra góðu störf fyrir félagið og býð nýtt fólk velkomið til starfa.

Starfsfólki félagsins öllu færi ég mínar bestu þakkir fyrir góð störf og ekki síst þann óbilandi vilja að gera félagið að því fyrirmyndarfélagi sem Eining-Iðja er. Það er valinn maður í hverju rúmi, allir eru tilbúnir að vinna sem ein heild í okkar þágu.

Nýlega hélt félagið Matarmenningarhátíð í Hofi þar sem félagsmenn frá 12 ólíkum löndum buðu upp á smakk á mat frá sínu heimalandi. Hátíðin stóð yfir í tvo tíma og er óhætt að segja að hún hafi verið vel heppnuð. Mikið var af æðislega góðum mat í boði og frábær mæting, en um 600 gestir voru á svæðinu og nutu kræsinganna. Ég segi takk þið öll sem tókuð þátt þetta verður sannarlega endurtekið að ári.

Takk fyrir öll samskiptin á starfsárinu. Ég vil hvetja ykkur félagsmenn til að vera í sambandi við stéttarfélagið ykkar, það eruð þið sem greiðið okkur launin. Látið endilega vita ef við getum einhversstaðar gert betur.

Að lokum áður en ég sný mér að hefðbundinni skýrslu stjórnar þá langar mig að segja að ég hef tekið þá ákvörðun að láta af störfum hjá félaginu frá og með 1. júní nk. Í lögum félagsins er það þannig að varaformaður tekur við formennskunni og ný stjórn félagsins mun svo taka ákvörðun um hver tekur að sér hlutverk varaformanns. Ég hef ekki áhyggjur af framtíð félagsins þar sem það er valinn maður í hverju rúmi. Með sterkri stjórn félagsins, frábæru starfsfólki, öflugum trúnaðarmönnum og öllu okkar félagsfólki er framtíðin björt. Félagið stendur sterkt og treysti ég Tryggva algjörlega til að taka við formennskunni.

Eins og ég sagði í upphafi þá má á aðalfundarvefnum bæði finna ársreikninginn í heild sinni sem og allskyns upplýsingar um starfsemi félagsins á síðasta starfsári.

Aðalfélagar í árslok 2025 voru 7.594.

Fjölmargir félagsmenn fengu einhverskonar styrk eða endurgreiðslu kostnaðar á síðasta ári. 1.236 fengu starfsmenntastyrki, 2.081 fengu styrki úr sjúkrasjóði, 1.641 fengu orlofsstyrk eða orlofshús og um 180 einstaklingar fóru í orlofsferðir á vegum félagsins eða í leikhús þetta starfsárið.

Varðandi greiðslur til félagsmanna á árinu þá voru þær alls um 474 milljónir króna. Greiðslur úr sjúkrasjóðnum voru rúmar 276 milljónir. Greiðslur úr fræðslusjóði rúmar 76 milljónir og úr orlofssjóði tæpar 122 milljónir.

Hermann Brynjarsson mun fara yfir reikninga félagsins hér á eftir, en á árskýrsluvefnum okkar má m.a. sjá lykiltölur og samanburð við árið á undan.

Vert er að minna enn og aftur á samstarfssamning sem félagið er með við SÍMEY með það að markmiði að skapa enn fleiri möguleika fyrir félagsmenn til að sækja sér fræðslu og auka við starfstengda hæfni sína.

SÍMEY býður upp á fjöldamörg námskeið sem eru bæði starfstengd og tengd áhugamálum hvers og eins. Áhugasamir geta kíkt á www.simey.is til að sjá framboð námskeiða.

Á vef félagsins og á aðalfundarvefnum má sjá reglur fræðslusjóðanna þriggja um endurgreiðsluhlutfall styrkja.

1.236 félagsmenn, 682 konur og 553 karlar, fengu einstaklingsstyrki úr sjóðunum. Þetta er aukning um 34 félagsmenn frá árinu áður. Upphæðin sem greidd var hækkaði um tæpar 2 milljónir og var rúmar 76 milljónir.

Á aðalfundarvefnum okkar má finna aldursdreifingu styrkþega og yfirlit yfir helstu námskeið. Tengiliður við menntasjóðina er Aðalbjörg G. Hauksdóttir og hefur hún einnig umsjón með félagslegri fræðslu hjá félaginu.

Tryggvi varaformaður sér um starfs- og tómstundanámskeið sem félagið heldur. Endilega hafið samband við hann ef þið eruð með hugmynd um námskeið.

Nýting orlofshúsa hefur verið mjög góð. Félagið á núna 23 orlofshús og átta orlofsíbúðir, auk þriggja sjúkraíbúða. Auk húsa og íbúða sem eru í eigu félagsins vorum við með orlofsbústaði víðsvegar um landið í skiptum fyrir orlofshús á Illugastöðum auk leigubústaða.

Ég vil minna á að gæludýr eru stranglega bönnuð í öllum húsum og íbúðum félagsins nema í húsi félagsins í Húsafelli.

Tvö fyrirtæki hafa umsjón með íbúðum félagsins á höfuðborgarsvæðinu. Leigjandi þarf ekki að þrífa íbúðina eftir leigutíma, en auðvitað þarf að skila henni fullfrágenginni og snyrtilegri. Leigutakar þurfa sjálfir að þrífa orlofshúsin áður en þeim er skilað.

Það ber að skilja við hús og íbúðir eins og við viljum koma að þeim. Verði vanhöld á þrifum, að mati umsjónarmanns á viðkomandi svæði, má búast við að leigutaki þurfi að borga þrifagjald.

Félagar! Höfum í huga að orlofshúsin eru sameign okkar allra og því er nauðsynlegt að við sameinumst um að ganga um þau með því hugarfari.

Félagið úthlutaði 268 orlofsstyrkjum „Orlof að eigin vali“ af þeim 300 sem í boði voru. Hver styrkur var að hámarki 28.000 krónur.

Í fyrra var boðið upp á tvær ferðir fyrir félagsmenn, árlega dagsferð fyrir eldri félagsmenn og tveggja daga ferð um Austurland.

Í ár eru tvær ferðir í boði. Það seldist upp á tveimur dögum í ferð félagsins til Hollands og Þýskaland í júní. Fljótlega verður farið að taka við skráningu í árlega dagsferð fyrir aldraða félagsmenn sem verður í ágúst út í Flatey.

Allar upplýsingar um ferðirnar má nálgast á heimasíðu félagsins.

Eins og áður er alltaf mikið um fundi hjá félaginu, m.a. í aðalstjórn og deildarstjórnum, í svæðisráðum, trúnaðarráði og samninganefnd. Vinnustaðafundir eru haldnir, fundir með einstökum hópum um tilfallandi mál og síðan eru starfsmenn oft kallaðir til aðstoðar við lausn ýmissa mála á vinnustöðum. Fjölmargir aðrir fundir hafa verið haldnir, t.d. með trúnaðarmönnum um ýmis mál. Einnig mættu fulltrúar félagsins á ýmsa aðra fundi fyrir hönd þess.

Trúnaðarráð heldur vanalega tvo fundi á hverju starfári en fyrr í apríl var haldinn aukafundur þar sem Róbert Farestveit, Sviðsstjóri Hagfræði- og greiningasviðs ASÍ, fór yfir stöðu kjarasamninga, ræddi m.a. um forsenduákvæði og verðlagsforsendur kjarasamninga í haust.

Tveir fundir voru í uppstillingarnefnd og gekk vel að fá félagsfólk til að gefa kost á sér í trúnaðarráð.

Ellefu fundir voru haldnir í stjórn félagsins þar sem fjölmörg mál voru tekin fyrir. Vert er að benda á að stjórnarmenn fá afhent á hverjum fundi uppfært yfirlit yfir rekstur félagsins. Þannig veit stjórnin alltaf hvernig staðan er miðað við áætlun sem gerð er í upphafi hvers árs. Á aðalfundarvefnum má finna helstu mál sem tekin voru fyrir á stjórnarfundunum.

Á hverju ári eru haldnir nokkrir almennir félagsfundir á þéttbýlissvæðunum utan Akureyrar, engin breyting varð á því þetta starfsárið.

Aðalfundir starfsgreinadeildanna fóru fram í byrjun febrúar. Mjög dræm mæting var á fundina en þrátt fyrir það tókust þeir mjög vel. Skýrslur stjórna má finna á heimasíðu félagsins. Formenn og varaformenn deilda eru sjálfkjörnir í stjórn félagsins.

10. þing Starfsgreinasambands Íslands fór fram á Akureyri í október og átti félagið þar 15 fulltrúa.

ASÍ-UNG hélt sitt árlega þing í nóvember og fór það að þessu sinni fram á Hellu. Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir, sem situr í stjórn Matvæla- og þjónustudeildar, var endurkjörin í stjórn til næsti tveggja ára. Valdimar Friðjón Jónsson, sem situr í stjórn Opinberu deildar félagsins, var kjörinn sem varamaður í stjórn ASÍ-UNG til eins árs.

Nánari umfjöllum um alla þessa fundi og þing má finna á aðalfundarvefnum okkar undir liðnum aðalfundargögn.

Heimasíðan var eins og áður vel virk og mjög vel sótt af félagsmönnum og öðrum. Félagið er líka á Facebook og svo detta líka inn ýmsar tilkynningar og ábendingar á Instagram síðu félagsins þannig að það er um að gera að fylgjast líka vel með henni. Ef þið viljið koma einhverjum ábendingum varðandi hana til okkar þá er best að hafa samband við hann Ödda.

Við sem störfum á skrifstofunum þökkum fyrir öll samskiptin á árinu og vonum að okkur hafi tekist að greiða úr sem flestu af því sem komið var með til okkar, hvort sem var í heimsóknum, síma eða á neti.

Ég vona að við munum áfram eiga góð samskipti og berum gæfu til að gera góða hluti á komandi starfsári.

Að lokum vil ég þakka öllum sem ég hef starfað með á árinu fyrir samstarfið.

Takk fyrir mig og takk fyrir hönd stjórnar og starfsmanna félagsins.

 

Til baka á forsíðu