Áritun óháðs endurskoðanda
Til stjórnar og félagsmanna í Einingu-Iðju
Álit
Við höfum endurskoðað meðfylgjandi ársreikning Einingar- Iðju fyrir árið 2023. Ársreikningurinn hefur að geyma skýrslu stjórnar, rekstrarreikning, efnahagsreikning, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um helstu reikningsskila-aðferðir og aðrar skýringar.
Það er álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á árinu 2023, efnahag þess 31. desember 2023 og breytingu á handbæru fé á árinu 2023, í samræmi við lög um ársreikninga. Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægilegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.
Grundvöllur fyrir áliti
Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt þeim stöðlum er nánar lýst í kaflanum um ábyrgð endurskoðenda hér að neðan. Við erum óháð Einingu-Iðju. Í samræmi við settar siðareglur fyrir endurskoðendur á Íslandi og höfum við uppfyllt ákvæði þeirra. Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægilegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.
Óhæði
Við erum óháð Einingu-Iðju. Í samræmi við settar siðareglur fyrir endurskoðendur á Íslandi og höfum við uppfyllt ákvæði þeirra.
Ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra á ársreikningnum
Stjórn og framkvæmdastjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu ársreikningsins í samræmi við lög um ársreikninga. Stjórn og framkvæmdastjóri eru einnig ábyrg fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er varðandi gerð og framsetningu ársreikningsins, þannig að hann sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Við gerð ársreikningsins eru stjórn og framkvæmdastjóri ábyrg fyrir því að meta rekstrarhæfi Einingar-Iðju. Ef við á skulu stjórn og framkvæmdastjóri setja fram viðeigandi skýringar um rekstrarhæfi og hvers vegna var ákveðið að beita forsendunni um rekstrarhæfi við gerð og framsetningu ársreikningsins, nema stjórn og framkvæmdastjóri hafi ákveðið að leysa félagið upp eða hætta starfsemi, eða hafa enga aðra raunhæfa möguleika en að gera það.
Stjórn skal hafa eftirlit með gerð og framsetningu ársreikningsins.
Ábyrgð endurskoðenda á endurskoðun ársreikningsins
Markmið okkar er að afla nægjanlegrar vissu um að ársreikningurinn sé án verulegra annmarka, hvort sem er af völdum sviksemi eða mistaka og gefa út áritun sem felur í sér álit okkar. Nægjanleg vissa er mikil vissa, en ekki trygging þess að endurskoðun framkvæmd í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla muni uppgötva allar verulegar skekkjur séu þær til staðar. Skekkjur geta orðið vegna mistaka eða sviksemi og eru álitnar verulegar ef þær gætu haft áhrif á fjárhagslega ákvarðanatöku notenda ársreikningsins, einar og sér eða samanlagðar.
Endurskoðun okkar í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla byggir á faglegri dómgreind og beitum við faglegri tortryggni í gegnum endurskoðunina. Við framkvæmum einnig eftirfarandi:
Greinum og metum hættuna á verulegri skekkju í ársreikningnum, hvort sem er vegna mistaka eða sviksemi, hönnum og framkvæmum endurskoðunaraðgerðir til að bregðast við þeim hættum og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi til að byggja álit okkar á. Hættan á að uppgötva ekki verulega skekkju vegna sviksemi er meiri en að uppgötva ekki skekkju vegna mistaka, þar sem sviksemi getur falið í sér samsæri, skjalafals, misvísandi framsetningu ársreiknings, að einhverju sé viljandi sleppt eða að farið sé framhjá innri eftirlitsaðgerðum.
Öflum skilnings á innra eftirliti sem snertir endurskoðunina, í þeim tilgangi að hanna viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki í þeim tilgangi að veita álit á virkni innra eftirlits félagsins.
Metum hvort reikningsskilaaðferðir sem notaðar eru, og tengdar skýringar, séu viðeigandi og hvort reikningslegt mat stjórnenda sé raunhæft.
Ályktum um notkun stjórnenda á forsendunni um rekstrarhæfi og metum á grundvelli endurskoðunarinnar hvort verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi eða hvort aðstæður séu til staðar sem gætu valdið verulegum efasemdum um rekstrarhæfi. Ef við teljum að verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi ber okkur að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum ársreikningsins í áritun okkar. Ef slíkar skýringar eru ófullnægjandi þurfum við að víkja frá fyrirvaralausri áritun. Niðurstaða okkar byggir á endurskoðunargögnum sem aflað er fram að dagsetningu áritunar okkar. Engu að síður geta atburðir eða aðstæður í framtíðinni valdið óvissu um rekstrarhæfi félagsins.
Metum í heild sinni hvort ársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum, metum framsetningu, uppbyggingu, innihald og þar með talið skýringar með tilliti til glöggrar myndar.
Okkur ber skylda til að upplýsa stjórn meðal annars um áætlað umfang og tímasetningu endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem komu upp í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka á innra eftirliti sem komu fram í endurskoðuninni, ef við á.
Akureyri, 16. apríl 2024
Enor ehf., Hafnarstræti 53, 600 Akureyri
Davíð Búi Halldórsson
löggiltur endurskoðandi
Áritun skoðunarmanna
Við undirritaðir félagskjörnir skoðunarmenn höfum yfirfarið reikninga Einingar-Iðju reikningsárið 2023.
Við höfum ekkert við þá að athuga og leggjum til að þeir verði samþykktir.
Akureyri 8. apríl 2024
Hrafnhildur Ása Einarsdóttir
Ævar Þór Bjarnason
Skýrsla stjórnar
Stéttarfélagið Eining-Iðja var stofnað þann 15 . maí 1999. Félagið var stofnað við sameiningu Verkalýðsfélags Einingar og Iðju félags verksmiðjufólks. Á árinu 2008 sameinaðist almenna deild Vöku á Siglufirði Einingu-Iðju. Fullgildir félagsmenn í árslok 2023 voru 8.024.
Starfsemin á árinu
Starfsemin á árinu var með svipuðu sniði og árið áður. Covid hafði nokkur áhrif á rekstur félagsins á árinu 2022 og var kostnaður lægri af þeim sökum.
Heildartekjur | 863.518.889 | |
Heildargjöld | (827.136.681) | |
Tekjuafgangur | 36.382.208 |
Laun formanns félagsins námu á árinu 2023 kr. 15.384.248 og laun stjórnar kr. 4.919.900
Staðfesting ársreikningsins
Stjórn Einingar-Iðju staðfestir hér með ársreikning félagsins fyrir árið 2023 með áritun sinni.
Akureyri, 8. apríl 2024
Anna Júlíusdóttir, formaður
Tryggvi Jóhannsson, varaformaður
Gunnar Magnússon, ritari
Pálmi Þorgeir Jóhannsson, meðstjórnandi
Baldvin Hreinn Eiðsson, formaður Matvæla- og þjónustudeildar
Guðbjörg Helga Andrésdóttir, formaður Opinberu deildar
Ingvar Kristjánsson, formaður Iðnaðar- og tækjadeildar
Bethsaida Rún Arnarson, varaformaður Matvæla- og þjónustudeildar
Ingibjörg María Ingvadóttir, varaformaður Opinberu deildar
Svavar Magnússon, varaformaður Iðnaðar- og tækjadeildar
Halldóra Þormóðsdóttir, svæðisfulltrúi Fjallabyggðar
Róbert Þorsteinsson, svæðisfulltrúi Grýtubakkahrepps
Sigríður Þórunn Jósepsdóttir, svæðisfulltrúi Hríseyjar og Dalvíkurbyggðar
Yfirlit um rekstrarafkomu 2023
|
2023 |
2022 |
Afkoma fyrir fjármagnstekjur og gjöld |
|
|
Félagssjóður ……………………………………………………… |
38.028.272 |
78.813.834 |
Sjúkrasjóður ………………………………………………………. |
11.277.701 |
29.017.210 |
Orlofssjóður ………………………………………………………. |
16.637.382 |
17.834.555 |
Vinnudeilusjóður ………………………………………………. |
(24.298.633) |
(22.302.891) |
Fræðslusjóður …………………………………………………… |
(12.478.396) |
(11.257.060) |
Byggingarsjóður ………………………………………………… |
(1.179.099) |
6.711.953 |
|
27.987.227 |
98.817.601 |
Afkoma ársins |
|
|
Félagssjóður ……………………………………………………… |
5.320.131 |
11.832.014 |
Sjúkrasjóður ………………………………………………………. |
21.154.122 |
32.048.823 |
Orlofssjóður ………………………………………………………. |
2.399.874 |
31.858.215 |
Vinnudeilusjóður ………………………………………………. |
16.620.320 |
20.438.261 |
Fræðslusjóður …………………………………………………… |
368.881 |
742.940 |
Byggingarsjóður ………………………………………………… |
(9.481.120) |
3.359.940 |
|
36.382.208 |
100.280.193 |
Yfirlit um efnahag 31. desember 2023
|
31.12.2023 |
31.12.2022 |
Eignir |
|
|
Félagssjóður ……………………………………………………… |
1.036.682.096 |
1.000.935.722 |
Sjúkrasjóður ………………………………………………………. |
206.311.685 |
185.157.563 |
Orlofssjóður ………………………………………………………. |
808.680.042 |
712.839.532 |
Vinnudeilusjóður ………………………………………………. |
578.559.628 |
561.939.308 |
Fræðslusjóður …………………………………………………… |
3.509.984 |
3.141.103 |
Byggingarsjóður ………………………………………………… |
191.128.286 |
198.857.197 |
Kröfur/skuldir milli sjóða …………………………………… |
(1.481.583.012) |
(1.418.061.401) |
|
1.343.288.709 |
1.244.809.024 |
Eigið fé |
|
|
Félagssjóður ……………………………………………………… |
209.896.471 |
204.072.653 |
Sjúkrasjóður ………………………………………………………. |
206.311.685 |
185.157.563 |
Orlofssjóður ………………………………………………………. |
186.093.505 |
135.889.785 |
Vinnudeilusjóður ………………………………………………. |
578.559.628 |
561.939.308 |
Fræðslusjóður …………………………………………………… |
3.509.984 |
3.141.103 |
Byggingarsjóður ………………………………………………… |
12.054.605 |
21.535.725 |
|
1.196.425.878 |
1.111.736.137 |
Skuldir |
|
|
Félagssjóður ……………………………………………………… |
826.785.625 |
796.863.069 |
Orlofssjóður ………………………………………………………. |
622.586.537 |
576.949.747 |
Byggingarsjóður ………………………………………………… |
179.073.681 |
177.321.472 |
Kröfur/skuldir milli sjóða …………………………………… |
(1.481.583.012) |
(1.418.061.401) |
|
146.862.831 |
133.072.887 |
Eigið fé og skuldir samtals |
1.343.288.709 |
1.244.809.024 |
Skýringar
1. Almennar upplýsingar
Eining-Iðja er stéttarfélag sem starfar á grundvelli laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur og laga félagsins frá árinu 2019. Starfstöð félagsins er á Akureyri þar sem það rekur þjónustuskrifstofu fyrir félagsmenn.
1.1 Yfirlit um helstu reikningsskilaaðferðir
Grundvöllur reikningsskila
Ársreikningurinn er gerður í samræmi við lög um ársreikninga. Gerð er grein fyrir helstu reikningsskilaaðferðum, sem í meginatriðum eru þær sömu og árið á undan, að öðru leyti en því sem fram kemur hér á eftir. Við gerð reikningsskilanna þurfa stjórnendur að meta ýmis atriði og gefa sér forsendur um mat á eignum, skuldum, tekjum og gjöldum. Þó svo möt þessi séu samkvæmt bestu vitund stjórnenda geta raunveruleg verðmæti þeirra liða sem þannig eru metnir reynst önnur en niðurstaða samkvæmt matinu.
Innlausn tekna
Iðgjöld eru færð til tekna miðað við innsendar skilagreinar.
Aðrar rekstrartekjur
Söluhagnaður af varanlegum rekstrarfjármunumer reiknaður sem mismunur á söluverði og bókfærðu verði á viðskiptadegi.
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
Vaxtatekjur eru tekjufærðar miðað við upphaflega ávöxtunarkröfu skuldabréfaeignar og áfallnar vaxtatekjur vegna bankainnistæðna og viðskiptakrafna eru tekjufærðar nema vafi leiki á um innheimtu þeirra.
Varanlegir rekstrarfjármunir og afskriftir
Varanlegir rekstrarfjármunir eru færðir á kostnaðarverði að frádregnum afskriftum.
Afskriftir eru færðar á kerfisbundinn hátt á áætluðum endingartíma eigna að teknu tillits til áætlaðs hrakvirðis. Afskriftaraðferðir, endingartími og áætlað hrakvirði er metið að minnsta kosti árlega.
Innréttingar og búnaður ................................................................................................... 20%
Orlofshús og fasteign Skipagötu ...................................................................................... 2-4%
Kostnaður vegna viðhalds er gjaldfærður í rekstrarreikningi þegar hann verður til. Kostnaður við meiriháttar endurbætur á varanlegum rekstrarfjármunum er eignfærður þegar endurbæturnar hafa í för með sér að eignir verði hæfari til tekjuöflunar eða nýtingartími verður lengri. Endurbæturnar eru afskrifaðar á áætluðum endingartíma viðkomandi eigna. Endurbætur orlofshúsa á orlofssvæðum eru færðar á eigið fé og endurmatshækkun ársins á móti.
Aðrar eignir, langtímakröfur og áhættufjármunir
Eignarhlutir í orlofsbyggðum er bókfærður, sem hlutfall félagsins í eigin fé viðkomandi orlofsbyggðar. Hlutabréf eru metin á gangverði eða kostnaðarverði. Bundnar bankainnistæður eru flokkaðar með langtímakröfum þegar þær eru bundnar til lengri tíma en 12 mánaða.
Iðgjöld
Iðgjöld eru færð til tekna á grundvelli skilagreina sem félaginu berast frá launagreiðendum og útistandandi iðgjöld færð sem kröfur um áramót.
Handbært fé
Handbært fé og jafngildi þess eru færð í efnahagsreikning á kostnaðarverði. Handbært fé samkvæmt sjóðstreymi samanstendur af sjóði, óbundnum bankainnstæðum og fjárvörslureikningum.
2. Annar rekstrarkostnaður |
2023 |
2022 |
Stjórnarlaun ………................................................................ |
4.919.900 |
4.484.400 |
Launatngd gjöld vegna stjórnarlauna ................................. |
1.009.098 |
0 |
Ferðakostnaður ………........................................................... |
5.275.785 |
2.998.597 |
Funda-, móttöku- og auglýsingakostnaður …...................... |
6.354.964 |
7.306.467 |
Endurskoðun, reikningsskil og sérfræðiaðstoð ………........... |
2.266.412 |
2.018.142 |
Kerfisleiga og heimasíða ………............................................. |
8.575.833 |
6.482.334 |
Þróunarkostnaður hugbúnaðar .......................................... |
34.871.493 |
0 |
Félagsblað ………................................................................... |
6.721.853 |
5.990.023 |
Framlag 1. maí ………............................................................ |
1.474.448 |
1.045.280 |
Rekstur ljósritunarvélar ……….............................................. |
70.770 |
199.888 |
Uppihaldskostnaður vegna ferða og funda ………….............. |
1.419.851 |
1.006.026 |
Ráðningarkostnaður starfsmanna ……………………….............. |
1.680.664 |
0 |
Áprentaðir munir til félgasmanna ……………………………….….. |
941.000 |
517.017 |
Launa- og viðhorfskönnun ……….......................................... |
3.603.501 |
3.341.496 |
Menningar- og líknarmál, styrkir og gjafir …………................ |
4.107.104 |
3.242.953 |
Styrktarauglýsingar ………..................................................... |
407.596 |
381.300 |
Verkefnastjórnun á Norðurlandi ………………………………..……. |
229.012 |
324.132 |
Viðhald og endurnýjun áhalda ……….................................... |
2.439.433 |
1.797.120 |
Bækur, blöð og tímarit ………................................................ |
144.344 |
57.120 |
Innheimtukostnaður ………................................................... |
2.434.050 |
2.211.680 |
Lögfræðikostnaður ………..................................................... |
10.742.460 |
7.182.581 |
Námskeið stjórnar og starfsmanna ………............................. |
2.037.744 |
1.271.382 |
Niðurfærðar kröfur/iðgjöld, breyting ………......................... |
472.713 |
728.883 |
Ýmiss annar kostnaður …………............................................. |
2.131.318 |
1.450.184 |
|
104.331.346 |
54.037.005 |
Stjórn félagsins samþykkti að gera þróunarsamning við félagið Dorado ehf. um hönnun heilstæðs tölvukerfis til að halda utanum allt er varðar félagana og tengjast DK kerfinu. Úttekt óháðs sérfróðs aðila leiðir það í ljós að mikið vantar upp á að Dorado ehf. hafi staðið við sinn hlutas amningsins og óvíst hvort hægt sé að treysta á að þessi lausn skili Einingu-Iðju því sem væntingar stóðu til. Fært var til gjalda á árinu 34,9 mkr. vegna þessa samnings, sem rann út í lok árs 2023 og hefur ekki verið endurnýjaður.
3. Kostnaður vegna svæðisráða og starfsgreinadeilda |
2023 | 2022 |
Ferðir og fundir ……………………………….................................. |
3.076.617 |
3.342.378 |
4. Sjúkrasjóðsgreiðslur til félagsmanna |
2023 |
2022 |
Dagpeningar ………............................................................... |
204.866.781 |
176.709.061 |
Útfararstyrkir ……….............................................................. |
3.150.000 |
3.430.000 |
Sjúkraþjálfun/nudd ………..................................................... |
16.351.456 |
12.617.465 |
Líkamsrækt …….................................................................... |
19.337.867 |
13.460.711 |
Aðrir styrkir ………................................................................. |
21.360.188 |
14.502.257 |
Krabbameinsskoðun ………................................................... |
1.093.538 |
783.301 |
|
266.159.833 |
221.502.795 |
5. Annar rekstrarkostnaður sjúkrasjóðs |
2023 |
2022 |
Endurskoðun, reikningsskil og sérfræðiaðstoð …….............. |
1.563.478 |
1.392.209 |
Innheimtukostnaður ………................................................... |
2.176.017 |
1.977.221 |
Læknisvottorð ………............................................................. |
115.018 |
68.945 |
Niðurfærð iðgjöld, breyting ………………………..…………………… |
402.681 |
657.669 |
|
4.257.194 |
4.096.044 |
6. Orlofshús, orlofsbyggðir og orlofsstyrkir |
2023 |
2022 |
Rekstrarfélög orlofshúsa ………............................................. |
60.157.636 |
51.954.313 |
Orlof að eigin vali, orlofsferðir og niðurgeiðsla frístundamiða ….. |
8.694.129 |
7.586.219 |
Rekstur íbúða á Höfuðborgarsvæðinu ................................ |
26.300.111 |
23.902.216 |
Leiguhús og íbúðir ……………………….………………………………….. |
4.352.470 |
4.880.142 |
Sumarhús Tjarnargerði …………............................................. |
3.234.965 |
1.952.760 |
Rekstur Húsafell – Brekkuskógur 2 …................................... |
164.979 |
168.538 |
|
104.284.290 |
90.444.188 |
7. Annar rekstrarkostnaður orlofssjóðs |
2023 |
2022 |
Endurskoðun, reikningsskil og sérfræðiaðstoð …….............. |
501.128 |
446.233 |
Ýmiss kostnaður ……………………………………………………………… |
128.576 |
61.083 |
Innheimtukostnaður ………................................................... |
635.160 |
577.133 |
Niðurfærð iðgjöld, breyting ………………………..…………………… |
109.424 |
173.319 |
|
1.374.288 |
1.257.768 |
8. Eignarhlutir |
||
Eignarhlutir sundurliðast þannig: |
Bókfært verð |
Nafnverð |
Alþýðuhúsið, húsfélag ………………………..…………………………… |
2.886.518 | 2.886.518 |
Sparisjóður Höfðhverfinga ……….......................................... |
11.107.616 | 11.107.616 |
|
13.994.134 | 13.994.134 |
9. Útistandandi iðgjöld og viðskiptakröfur
Útistandandi kröfur greinast þannig: |
31.12.2023 |
31.12.2022 |
Útistandandi kröfur …………………………………………….............. |
101.811.093 |
114.421.915 |
Niðurfærsla ……………………….……………………………………………. |
(4.163.827) |
(4.084.399) |
|
97.647.266 |
110.337.516 |
Skipting á sjóði: |
|
|
Félagssjóður …….................................................................. |
68.474.241 |
81.060.444 |
Sjúkrasjóður ………................................................................ |
21.344.196 |
21.411.857 |
Orlofssjóður ………................................................................ |
7.828.829 |
7.865.215 |
|
97.647.266 |
110.337.516 |
Niðurfærsla iðgjalda er færð til þess að mæta almennri áhættu sem fylgir kröfueign félagsins. Niðurfærslan er byggð á mati stjórnenda og reynslu fyrri ára. Hér er ekki um endanlega afskrift að ræða heldur niðurfærslureikning, sem mæta á þeim kröfum sem kunna að tapast og er hann dreginn frá eignfærðum viðskiptakröfum í efnahagsreikningi.
10. Varanlegir rekstrarfjármunir
Varanlegir rekstrarfjármunir, endurmat þeirra og afskriftir greinast þannig:
|
Félagssjóður |
Orlofssjóður |
Byggingasjóður |
Samtals |
|
|
Innréttingar |
Fasteignir |
Innbú |
Fasteignir |
|
Heildarverð 1/1 |
24.187.722 |
688.362.793 |
29.111.768 |
327.225.008 |
1.068.887.291 |
Endurmat á árinu |
0 |
41.310.000 |
0 |
0 |
41.310.000 |
Keypt á árinu |
0 |
56.452.455 |
2.535.070 |
0 |
58.987.525 |
Heildarverð 31/12 |
24.187.722 |
786.125.248 |
31.646.838 |
327.225.008 |
1.169.184.816 |
Afskrifað 1/1 |
19.879.049 |
48.874.310 |
16.107.714 |
128.367.811 |
213.228.884 |
Afskrifað á árinu |
990.692 |
9.219.988 |
2.471.488 |
7.728.911 |
20.411.079 |
Afskrifað alls 31/12 |
20.869.741 |
58.094.298 |
18.579.202 |
136.096.722 |
233.639.963 |
Bókfært verð samtals |
3.317.981 |
728.030.950 |
13.067.636 |
191.128.286 |
935.544.853 |
Fasteignir félagsins í árslok 2023 voru eftirtaldar, í þúsundum króna:
|
Fasteignamat |
Brunabótamat |
Bókfært verð |
Húseignin Skipagata 14 .................. |
504.638 |
328.899 |
144.320 |
Álalind 2, 5 íbúðir .……..……………….. |
351.950 |
303.410 |
214.022 |
íbúð Ásholt 2, 2 íbúðir ………………... |
121.100 |
86.945 |
28.883 |
Sóltúni 30, 2 íbúðir ……………..………. |
114.400 |
71.400 |
81.349 |
Orlofshús Illugastöðum …............... |
216.800 |
383.650 |
216.800 |
Orlofshús Einarsstöðum ................. |
80.100 |
112.750 |
80.100 |
Orlofshús Svignaskarði ................... |
32.100 |
45.100 |
32.100 |
Orlofshús Flókalundi ...................... |
10.350 |
17.350 |
10.350 |
Orlofshús Tjarnargerði .……………….. |
49.150 |
50.261 |
9.103 |
Orlofshúss Húsafelli ……………………. |
43.050 |
48.700 |
55.323 |
Eyrargata 24b .…............................. |
12.200 |
66.650 |
35.563 |
Hafnarbraut 5 .………………….………… |
6.080 |
22.550 |
11.246 |
|
1.541.918 |
1.537.665 |
919.159 |
11. Eigið fé
Yfirlit um breytingar á hreinni eign:
Sjóðir: |
Félags |
Sjúkra |
Orlofs |
Vinnudeilu |
Fræðslu |
Byggingar |
Samtals |
Eigið fé 1/1 |
204.072.653 |
185.157.563 |
135.889.785 |
561.939.308 |
3.141.103 |
21.535.725 |
1.111.736.137 |
Endurmat varanlegra rekstrarfjármuna |
0 |
0 |
41.310.000 |
0 |
0 |
0 |
41.310.000 |
Endurmat eignarhluta |
503.687 |
0 |
0 |
0 |
0 |
0 |
503.687 |
Endurmat eignarhluta í orlofsbyggðum |
0 |
0 |
6.493.846 |
0 |
0 |
0 |
6.493.846 |
Afkoma skv. rekstrarreikningi |
5.320.131 |
21.154.122 |
2.399.874 |
16.620.320 |
368.881 |
(9.481.120) |
36.382.208 |
Eigið fé 31/12 |
209.896.471 |
206.311.685 |
186.093.505 |
578.559.628 |
3.509.984 |
12.054.605 |
1.196.425.878 |